Mikil leit stendur nú yfir að ummerkjum um þotu EgyptAir sem beygði skyndilega og hvarf af ratsjám á leið sinni frá París til Kaíró. 66 voru um borð. Fregnir þess efnis að brak úr vélinni hefði fundist nærri eynni Karpathos hafa verið dregnar til baka af stjórnendum flugfélagsins.