Sumarleg sósa með mojito-keim er punkturinn yfir i-ið í þessum holla og ferska kjúklingarétti með fennel og gulrótum, sem Óskar kokkur töfrar fram í þætti dagsins af Korter í kvöldmat. „Þessi kjúklingaréttur er alveg geggjaður og ótrúlega einfaldur,“ segir kokkurinn sjálfur.