Það er ekki tekið út með sældinni að vera íþróttafréttamaður á stórmóti í knattspyrnu. Því hefur Guðmundur Benediktsson fengið að kynnast undanfarið, en hann lifir sig inn í leiki Íslands á Evrópumótinu í knattspyrnu karla af líkama og sál eins og sjá má í myndskeiði sem fylgir þessari frétt.