Framkvæmdir hafa staðið yfir við húsnæði hjónagarða að Eggertsgötu 4 undanfarið og valdið íbúum töluverðum óþægindum. Íbúar hússins segja umgengni verktaka með öllu ólíðandi og nálægt að upp úr syði þegar vatn flæddi inn í húsið eftir rigningu fyrr í vikunni.