Foreldrar barna í frístundaheimilinu í Glaðheimum eru ósáttir við þá útiaðstöðu sem börnunum sem eru 6-9 ára er boðið upp á. Lítið sem ekkert af leiktækjum er í boði fyrir börnin úti og þá vilja þeir að sett sé upp girðing við Holtaveg til að auka öryggi barnanna.