Brynhildur Aðalsteinsdóttir þarf alls ekki að létta sig. Hún er nú þegar 10 kg léttari en hún var fyrir sjö árum. Henni finnst hún hinsvegar ekki búin að klára það verkefni að koma sér í toppform og ætlar að nota Lífsstílsbreytingu Smartlands og Sporthússins til að ná markmiðinu í eitt skipti fyrir öll. Þar að segja að massa sig upp.