Guðlaugur og Tómas sungu saman lagið Lean on Me með Bill Withers í einvígum sjónvarpsþáttanna The Voice Ísland. Guðlaugur er djúpraddaður en Tómas með háa og tæra rödd, ólíkar raddir þeirra komu vel saman í flutningnum og þjálfararnir voru ekki sammála um hvor ætti skilið að sigra.