Salka Sól var með tárin í augunum að loknu einvígi Alexöndru og Jónu Öllu í The Voice. „Ég veit ekki hvernig ég kom mér í þessa stöðu, hvernig á ég að velja á milli?“ Ákvörðunin var erfið en Sölku til mikils léttis var þeirri sem beið í lægri hlut stolið.