„Ég bjóst engan veginn við því að vinna einvígið. Ég er svo nýr í þessu, mér finnst allir svo frábærir í kringum mig,“ segir Tómas um sigur í ofureinvígi í The Voice. Tómas er um þessar mundir á Kanarí en íhugaði að hætta við ferðina þegar í ljós kom að hann kæmist áfram í beinar útsendingar.