„Obama negldi alla Kúbverja“, segir Kúbverjinn Yadiel Cruz í samtali við AFP-fréttastofuna. Cruz, sem dvelur í Panama, var bitur í máli er hann frétti að Barack Obama hafi gert kúbverskum innflytjendum erfiðar um vik að fá dvalarleyfi í Bandaríkjunum.