Mikill fjöldi fólks tók þátt í Vetrarhátíð á höfuðborgarsvæðinu um síðustu helgi. Boðið var upp á fjölda viðburða í almenningsrýmum sem margir hverjir voru vel sóttir. Jón Jónsson tróð upp í sundlaug og eldgosamyndum var varpað á Hallgrímskirkju eins og sjá má í myndskeiði sem framleitt var í tilefni hátíðarinnar.