„Framkvæmdir á tvöföldun á þessum vegkafla hér eiga að hefjast í fyrsta lagi árið 2019 og það er allt, allt of seint,“ segir talsmaður Stopp-hingað og ekki lengra um framkvæmdir á Reykjanesbraut þar sem alvarleg slys hafa orðið á síðustu vikum. Fjölgun ferðamanna hafi t.a.m. aukið umferð verulega.