„Já, þetta er mjög erfitt, að finna hvað maður vill gera í framtíðinni,“ segir Sigurður Róbert Gunnarsson sem er að velja sér framhaldsskóla. mbl.is var í Laugardalshöllinni í dag og ræddi við nokkra krakka sem voru að kynna sér hvað væri í boði eftir að grunnskólanum lýkur. Allir voru sammála um að úrvalið væri í það minnsta mikið.