Sýrlensku flóttamennirnir sem Frans páfi tók með sér í flugvél sína er hann heimsótti flóttamannabúðir á síðasta ári eru nú farnir að aðlagast lífinu á Ítalíu. „Við höfum ekki tíma til að hugsa okkur um,“ sagði Nour sem er 32 ára og hefur nú fengið vinnu sem líffræðingur á ítölskum spítala.