Yfirvöld í Frakklandi segja öryggisviðbúnað vegna fyrri umferðar forsetakosninganna, sem fram fara í landinu á sunnudag, vera mikinn. Einn lögreglumaður lést og tveir slösuðust í skotárás sem beint var gegn lögreglumönnum á Champs Elysees í gærkvöldi og þykir árásin varpa skugga á kosningarnar.