Sérfræðingi í netöryggi virðist hafa tekist að uppgötva leið til þess að koma í veg fyrir að hugbúnaðurinn sem notaður var í tölvuárás sem hófst í gær dreifi sér. Í það minnsta í bili. Sérfræðingurinn, sem skrifar um netöryggismál á samfélagsmiðlinum Twitter undir heitinu @MalwareTechBlog, segir uppgötvunina hafa verið tilviljun.