Tveir fréttamenn létust þegar jarðsprengja sprakk í borginni Mósúl í Írak í gær. Annar var franskur ríkisborgari og hinn íraskur. Harðir bardagar hafa geisað í og við Mósúl síðustu daga í tilraunum íraskra hersveita til að ná aftur hluta borgarinnar sem Ríki íslams hefur á valdi sínu.