Hátt í 300 stúdentar mættu á fund í Háskóla Íslands í dag þar sem prófstjóri skólans og forsvarsmenn Stúdentaráðs Háskóla Íslands sátu fyrir svörum. Mikill þungi var í í fundarmönnum sem kröfðust svara um afleiðingar hugsanlegs verkfalls háskólakennara á hagi stúdenta.