Í dag skrifuðu þrjú ferðaþjónustufyrirtæki undir kaupsamning við íslenska bílaframleiðandann Ísar, en stefnt er á að þrír bílar verði klárir á fyrri hluta næsta árs. Mbl.is ræddi við Kristján Kristjánsson og Björk Jónsdóttur hjá Mountain Taxi, en þau eru kaupendur að einum af bílunum.