Ómar Örn Sævarsson er einn lykilmanna í liði Grindavíkur sem er komið í úrslit Íslandsmóts karla í körfubolta gegn KR. Ómar skoraði 19 stig og tók 12 fráköst þegar Grindavík burstaði Njarðvík, 120:95 í oddaleik liðanna í undanúrslitum í Röstinni í kvöld.