Lögreglumaður myrti í dag þrjá bandaríska lækna þar sem þeir voru við störf á CURE International sjúkrahúsinu í Kabúl, höfuðborg Afganistan. Lögreglumaðurinn sem er afganskur reyndi að svipta sig lífi í kjölfarið en mistókst ætlunarverkið og var tekinn höndum.