Framkvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar segir það hafa verið galið hversu forvitið fólk hafi verið við brunann í Skeifunni í gær og að fólk hafi þvælst fyrir björgunarstörfum. Starfsfólk var þar að vinna til kl. 6 í morgun við að bjarga verðmætum bílaleigunnar.