„Það er nú alltaf þannig að ef staðan er 0:0, þá þarf bara eitt mark sem getur gert út um leikinn og komast áfram. Við hefðum alveg getað sett inn mark. Ef þetta hefði farið í vítaspyrnukeppni, veit enginn hvernig hún hefði heldur farið,“ sagði Hallur Hallsson fyrirliði Þróttar eftir að lið hans féll út úr 8-liða úrslitum bikarkeppni karla í knattspyrnu fyrir ÍBV í framlengdum leik á Valbjarnarvelli í kvöld. Leiknum lauk 1:0 fyrir ÍBV.