Bros var á hverju andliti í kjallara Hins hússins í dag þar sem haldin var lokahátíð sumarstarfs fatlaðra ungmenna. Á hátíðinni leyndist fjöldinn allur af hæfileikafólki, en á meðan einn brá sér í gervi fréttamanns lagði önnur grunninn að tónlistarferli sínum.