„Þetta var hörkuleikur allan tímann. Bæði lið fengu þolanleg færi. Sandra varði frábærlega og við skutum framhjá úr dauðafæri. Þetta hefði getað farið á hvorn veginn sem er. Mínir leikmenn höfðu hins vega vegar kjark og þor og kláruðu þetta og gerðu það virkilega vel,“ sagði Ólafur Þór Guðbjörnsson þjálfari Stjörnunnar eftir 1:0 sigur hans liðs í undanúrslitum bikarsins á Breiðabliki.