Móttaka bóka hófst á skiptibókamarkaði Griffils í dag, rúmum 3 vikum eftir stórbrunann í Skeifunni. Ingþór Ásgeirsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Pennans, segir bjartsýni ríkja meðal starfsfólks sem nú keppist við að koma hinum tímabundna markaði í gagnið á meðan leitað er að framtíðarhúsnæði.