Nú þegar innan við vika er þangað til aðdáendur Justins Timberlake geta farið að dilla sér við tónlist hans er undirbúningur í fullum gangi fyrir tónleikana sem fara fram í Kórnum. Ísleifur B. Þórhallsson, tónleikahaldari, lofar gestum miklu sjónarspili frá stórstjörnu á hátindi ferilsins.