Alls er um tuttugu blaðamanna saknað í Sýrlandi, samkvæmt upplýsingum frá bandarískum fjölmiðlasamtökum. Þeim fækkaði hins vegar um einn í vikunni þegar myndskeið af aftöku bandaríska blaðamannsins James Foley var birt á þriðjudag. Áður hafði verið reynt að fá greitt lausnarfé fyrir Foley.