Freyr Alexandersson annar tveggja þjálfara Leiknis í 1. deild karla í knattspyrnu var vitanlega hundsvekktur með tapið gegn ÍA, 1:0 á Leiknisvelli í uppgjöri toppliðanna í 1. deild í dag. Garðar Bergmann Gunnlaugsson skoraði sigurmark Skagamanna úr vítaspyrnu á 90. mínútu eftir brot á Hirti Hjartarsyni.