Í meðfylgjandi myndskeiði úr vefmyndavél Mílu má sjá upphaf eldgossins í nótt, en þar er um klukkustundarlangri upptöku hraðað í um eina mínútu. Gríðarlega margir hafa horft á vefmyndavélar Mílu, en fjöldi heimsókna nánast tvöfaldaðist í nótt miðað við síðustu helgi.