Sjúklingur gerði við tæki á spítalanum

Bosnískur bifvélavirki var í sjö tíma að gera við tæki á sjúkrahúsinu í Kasindol til að hægt væri að meðhöndla hann við nýrnasteini.

Læknar höfðu tjáð bifvélavirkjanum, Slobodan Mocevic, sem er 56 ára, að ekki væri hægt að eyða nýrnasteininum sem kvaldi hann vegna þess að tækið til þess væri bilað.

Mocevic bað um að fá lánuð nokkur verkfæri og reif svo í sundur tækið, sem brýtur nýrnasteina með hljóðbylgjum, og gerði við það.

„Ég var sárkvalinn og gat ekki beðið lengur,“ sagði Mocevic.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert