Vísbendingar um að sumir neanderthalsmenn hafi verið rauðhærðir

Svona munu neanderthalsmenn hafa litið út.
Svona munu neanderthalsmenn hafa litið út. AP

Einhverjir neanderthalsmenn voru að öllum líkindum rauðhærðir, samkvæmt niðurstöðum nýrrar DNA-rannsóknar, sem gerð var á erfðaefni úr líkamsleifum tveggja slíkra fornmanna, og greint er frá í vísindaritinu Science.

Það voru erfðafræðingar við Háskólann í Barcelona sem gerðu rannsóknina, en þeir fundu genið MC1R í leifum neanderthalsmannanna. Stökkbreyting á þessu geni í nútímamönnum veldur rauðum háralit, en fram til þessa hefur ekkert legið fyrir um hver háralitur útdauðra fornmanna hafi verið.

Með greiningu á afbrigði MC1R komust vísindamennirnir að því að rautt hár hafi einnig þekkst meðal neanderthalsmanna. Umrætt afbrigði er ekki að finna í nútímamönnum, en vísindamennirnir segja að það hafi haft svipuð áhrif á háralitinn.

Neanderthalsmenn eru ekki taldir hafa verið forfeður Homo sapiens heldur hafa dáið út fyrir um 25.000 árum

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert