Morgunmaturinn mikilvægur
Bandarískir vísindamenn hafa komist að því að unglingar sem borða morgunmat að staðaldri séu léttari, borða hollari mat og stunda heilsurækt oftar en jafnaldrar þeirra sem sleppa mikilvægustu máltíð dagsins.
Alls tóku 2.216 unglingar, sem búa í Minneapolis og St. Paul í Minnesota, þátt í rannsókninni. Fylgst var með matarvenjum þeirra, þyngd og öðrum þáttum sem tengjast lífsvenjum þeirra í fimm ár. Þeir voru 14 ára þegar rannsóknin hófst kemur fram í rannsókninni sem birtist í vísindaritinu Pediatrics.
Þar segir að því oftar sem ungmennin borðuðu morgunmat, því lægri var líkamsþyngdarstuðull (BMI) þeirra. Þeir sem ávallt slepptu því að borða morgunmat voru að meðaltali 2,3 kílóum þyngri en þeir sem snæddu morgunverð að staðaldri.
„Niðurstaða okkar leiddi í ljós að krakkar sem borða morgunmat reglulega, og sér í lagi á hverjum degi, lifa heilbrigðara lífi heilt yfir litið,“ sagði Mark Pereira, sem fór fyrir rannsókninni, í samtali við Reuters.
„Þau hreyfa sig meira og borða hollari mat. Þau borða minna af fitu og kólesteróli og borða meira af trefjum.“
U.þ.b. 25% bandarískra barna sleppa því að borða morgunmat. Vísindamennirnir benda á að þetta gerist á sama tíma og offita sé að aukast meðal ungs fólks.
Bloggað um fréttina
-
Rosaleg Roooop... -
Árni Gunnar Ásgeirsson Þeir sem borða hollari mat borða frekar morgunmat að staðaldri... -
Ásgrímur Hartmannsson Þá er það sannað: Hraust fólk er hraustara en fólk ... -
Jenný Anna Baldursdóttir ÁÁ- Árangursríkur áróður?
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú























