Nýjar vísbendingar um fyrstu mennina í Ameríku

Steingerður saur sem DNA efnið fékkst úr.
Steingerður saur sem DNA efnið fékkst úr. AP

Fundist hafa nýjar vísbendingar um að menn hafi búið í Norður-Ameríku fyrir rúmlega 14.000 árum, eða um þúsund árum fyrr en talið hefur verið. DNA úr steingerðum saur sem fannst í helli í Oregon bendir til að þessir menn hafi verið skyldir mönnum sem bjuggu í Síberíu og Austur-Asíu.

Greint er frá þessu í vefútgáfu Science í dag.

Almennt hefur verið talið að menn hafi komið til Ameríku frá Asíu á landbrú milli Asíu og Alaska. Deilt hefur verið um hvenær þetta muni hafa verið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert