Langlífisgenið fundið

Tuti Yusupowa frá Úsbekistan, er elsta kona heims. Hún er …
Tuti Yusupowa frá Úsbekistan, er elsta kona heims. Hún er fædd 1. júlí árið 1880 og verður því 129 ára í sumar. AP

Gen sem japanskir vísindamenn telja sig hafa fundið og ræður langlífi þarlendra, hefur nú einnig fundist í Evrópubúum. Vísindamenn telja að þeir sem bera þetta gen, geti orðið fjörgamlir.

Þýskir vísindamenn við háskólann í Köln, rannsökuðu erfðamengi 388 þjóðverja sem náð höfðu 100 ára aldri og báru saman við erfðamengi 731 þjóðverja af yngri kynslóðinni. Tiltekið gen, FOXO3A fannst í nær öllum þeim sem náð höfðu 100 ára aldri en síður í  hinum yngri.

Niðurstöðurnar þykja renna stoðum undir fyrri rannsóknir, meðal annars sambærilega rannsókn sem gerð var á rúmlega 3.700 japönskum karlmönnum sem náð höfðu 95 ára aldri.

Vísindamenn segja þetta merkilega niðurstöðu þar sem erfðamengi Japana og Evrópubúa séu um margt ólík.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert