Léttir salt lundina?

Birgðir hjá fyrirtækinu Saltkaup.
Birgðir hjá fyrirtækinu Saltkaup. Ragnar Axelsson

Vísindamenn við Iowa-háskóla segja að ef til vill bætum við salti út í fæðuna vegna þess að það virki eins og náttúrulegt þunglyndislyf enda þótt við vitum að of mikið af salti sé óhollt. Of mikil saltneysla getur valdið  háum blóðþrýstingi, segir á vef BBC.

 Greint er frá rannsóknum vísindamannanna í ritinu Psychology and Behavior. Tilraunir með rottur sýndu að fengju þær lítið af salti höfðu þær ekki áhuga á athöfnum sem þær höfðu yfirleitt gaman af en hegðun af þessu tagi er merki um þunglyndi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert