Microsoft hefur beðist afsökunar á því að hafa breytt ljósmynd með því að skipta út höfði þeldökks manns fyrir höfuð hvíts manns. Myndin, sem var á vefsíðu fyrirtækisins, sýnir fólk sitja við skrifborð. Hún virðist vera óbreytt á bandarísku vefútgáfunni, en á þeirri pólsku var búið að skipta um höfuð.
Það vekur hins vegar athygli að húðliturinn á höndunum er sá sami. Á myndinni sést einnig asískur karlmaður og hvít kona. Myndin hefur farið sem eldur um sinu á netinu.
Microsoft hefur fjarlægt myndina og rannsakar nú hver breytti henni. Sem fyrr segir hefur fyrirtækið beðist afsökunar á þessum mistökum.
Bloggarar hafa fjallað mikið um myndina og spaugað með þetta. Margir halda því fram að Microsoft sé að reyna þóknast öllum mörkuðum með því að sýna hvítt andlit en þeldökkar hendur.
Aðrir halda því fram að um kynþáttamál sé að ræða, þar sem meirihluti íbúa Póllands er hvítur. Af þeim sökum hafi myndinni verið breytt.