Yfirborð sjávar gæti hækkað um 2 metra

Jonas Gahr Støre og Al Gore á fundi Heimskautaráðsins í Trömsö fyrr á árinu. stækka

Jonas Gahr Støre og Al Gore á fundi Heimskautaráðsins í Trömsö fyrr á árinu. SCANPIX NORWAY

Heimskautaísinn bráðnar mun hraðar en til þessa hefur verið talið og yfirborð sjávar gæti hækkað um allt að 2 metra á þessari öld ef svo heldur sem fram horfir. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu, sem Al Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, og Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, hafa látið vinna.

Þeir Gore og Støre fengu hugmyndina að því að gera þessa skýrslu þegar þeir hittust á fundi Norðurskautsráðsins í Tromsö í Noregi fyrr á þessu ári. Þeir munu kynna niðurstöðurnar á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem nú stendur yfir í Kaupmannahöfn.

Fram kemur í norska blaðinu Aftenposten, sem hefur lesið skýrsluna, að helstu niðurstöðurnar séu þessar: 

  • Ný ísmyndun nær ekki að vinna upp bráðnun á báðum pólsvæðunum, á Grænlandi, í Himalaíafjöllum og sama þróun er á jöklum um allan heim. 
  • Áhrif bráðnunarinnar eru bæði svæðisbundin en hafa einnig áhrif um allan heim og veldur víxlverkun sem eykur á hlýnun loftslagsins. Þannig hefur minni hafís á norðurskautinu þau áhrif, að varmaupptaka frá sólu eykst. Það leiðir til þess að túndran þynnist sem aftur hefur þau áhrif að gríðarlegt magn af gróðurhúsalofttegundunum metani og koldíoxíði losnar út í andrúmsloftið.
  • Stöðugt meira magn af sótögnum frá brennandi lífmassa, svo sem trjám og grasi í Austur-Asíu, berst með vindinum og fellur á ísinn. Þetta eykur á bráðnunina vegna þess að sótið dregur í sig varma frá sólinni. 

Jonas Gahr Støre segir við Aftenposten, að þessar niðurstöður séu alvarlegar en ljóst sé, að bráðnun íss á landi og við sjóinn sé svo mikil að hættan á að yfirborð sjávar hækki umtalsvert hafi aukist mjög á síðustu árum.

Hann segir að spá loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna um að yfirborð hafsins gæti hækkað um 1 metra á öldinni hafi þótt öfgakennd en sé það ekki lengur. „Það eru miklar líkur á að hafið hækki um 1,2 metra og jafnvel um 2 metra á þessari öld," segir utanríkisráðherrann.

Að sögn Aftenposten hefur norska heimskautastofnunin ásamt vísindamönnum um allan heim safnað saman upplýsingum og lagt á þær mat fyrir skýrsluna. Gahr Støre segir, að í raun hafi niðurstöðurnar ekki komið á óvart. Hann segir að Gro Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, muni afhenda framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna skýrsluna en sjálfur ætli hann að senda hana til utanríkisráðherra allra þeirra 192 landa, sem taka þátt í ráðstefnunni í Kaupmannahöfn.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Tækni og vísindi »

Grímur tengdar samtökunum Anonymous.

Árás á vefsvæði CIA

Í gær, 23:16 Vefsvæði bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, er óaðgengilegt eftir tölvuárás samtakanna Anonymous fyrr í dag. Meðlimir samtakanna hafa fagnað sigri á samfélagsvefnum Twitter á sama tíma og talsmaður CIA sagði við fréttaveituna AFP að málið væri í rannsókn. Meira »

Norðurljósin utan úr geimnum myndskeið

í gær Alþjóðlega geimstöðin náði nýverið mögnuðum myndum af norðurljósum á fleygiferð yfir jörðinni. Norðurljós sjást allt frá Mexíkó til Kanada í janúar. Meira »

Óhefðbundin fjáröflun fyrir tölvuleik

Framhaldið af Psychonauts er væntanlegt í kjölfar óvenjulegrar fjáröflunar.
í gær Tölvuleikjahönnuður sem gekk illa að fá styrk frá framleiðslufyrirtækjum til að búa til framhald á vinsælan leik sinn hóf fjáröflun á veraldarvefnum. Viðtökurnar fóru fram úr öllum væntingum. Meira »

300 milljónir spjaldtölva árið 2015

Frá UT-messunni í dag.
9.2. Um 300 milljónir spjaldtölva seljast árið 2015. Á sama tíma er gert ráð fyrir að um 1,1 milljarður snjallsíma seljist. Þetta segir Guðmundur Arnar Þórðarson, sérfræðingur hjá Nýherja, en hann hélt erindi um sýndarvæðingu á UT-messunni sem fram fer í dag og í kvöld. Meira »

Windows 8 frumsýnt 29. febrúar

8.2. Prufuútgáfa af Windows 8 stýrikerfinu verður kynnt á hlaupársdegi, 29. febrúar næstkomandi. Tölvurisinn Microsoft mun kynna kerfið með viðhöfn á hóteli í Barcelona en þar stendur fyrir dyrum risastór tölvuráðstefna. Meira »

Lyf snýr við þróun Alzheimer

Heilbrigt heilahvel (t.h.) og heilahvel úr alzheimersjúklingi.
í gær Eftirtektarverður árangur hefur náðst við að snúa við þróun Alzheimer-sjúkdóms í músum með því að beita þekktu krabbameinslyfi. Í tímaritinu US journal Science segir að vonast sé til þess að um tímamót sé að ræða í baráttunni við sjúkdóminn. Meira »

Snjallsímar eru kuldaskræfur

Snjallsímar þola illa frost samkvæmt tilraun sem finnskt tæknitímarit gerði.
9.2. Snjallsímar þola illa frost og fimbulkulda. Verulega hægir á virkni þeirra þegar frost fer niður í fimm gráður og sumir þeirra hætta að virka við tíu gráðu frost. Eldri gerðir farsíma þola kuldann betur. Þetta kom fram í tilraun finnsks tæknitímarits. Meira »

Reyna að laða fleiri að EVE Online

Eve Online gerist í fjarlægum heimi.
8.2. Tölvuleikjafyrirtækið CCP hefur látið útbúa ný vefsvæði fyrir tölvuleikinn EVE Online. Annars vegar er um að ræða síðu þar sem allar upplýsingar eru fyrir hendi skyldi einhver hafa áhuga á að hefja leik, en hins vegar hefur samfélagssvæðið verið stórbætt, en þar geta spilarar rætt saman. Meira »

Stöðuvatn einangrað í 20 milljónir ára

Rússnesku vísindamennirnir fagna á Suðurskautslandinu.
8.2. Loksins eftir tveggja áratuga rannsóknir hefur rússneskum vísindamönnum tekist að bora niður að risastóru stöðuvatni undir íshellunni á Suðurskautslandinu. Hugsanlega er í vatninu að finna fornar lífverur sem gætu gagnast við leit að lífi á öðrum hnöttum. Meira »

Drinkorexía er áhyggjuefni

7.2. Sú tilhneiging ungmenna að svelta sig til þess að geta neytt áfengis án þess að hafa áhyggjur af því að fitna er kölluð „drinkorexía“ og er vaxandi áhyggjuefni víða um heim. Meira »

Helmingur 8-12 ára á Facebook

7.2. Næstum helmingur 8-12 ára breskra barna notar Facebook þótt þau séu of ung til að mega vera á samskiptavefnum. Í dag er alþjóðlegi netöryggisdagurinn. Meira »

10 þúsund tíst á sekúndu

Aðdáendur New York Giants fagna sigrinum í Ofurskálinni.
7.2. Óhætt er að segja að samskiptaþráðurinn Twitter hafi logað á meðan leikið var til úrslita í Ofurskálinni. Á síðustu 180 sekúndum leiksins voru send að meðaltali 10 þúsund tíst á hverri sekúndu. Meira »

„Snjallasta vél í heimi“

Watson stórtölvan
7.2. Snjallasta vél heims tekur rými á við 10 ísskápa og hefur vinnsluminni fyrir 200 milljónir blaðsíðna.  Meira »

„Ekki treysta gervihnattasímum“

Gervihnöttur fyrir GPS-staðsetningarkerfi á sveimi yfir jörðinni.
5.2. Sérfræðingar vara við því að með næga tölvuþekkingu geti hver sem er hlerað gervihnattasíma sem meðal annars ýmis stjórnvöld nýti sér til samskipta á svæðum þar sem ekki er hægt að treysta á hefðbundna samskiptatækni. Meira »

Fara með farþega í geiminn

Geimskutla. Mynd úr myndasafni.
2.2. Fyrsta tilraunaflug með farþega til alþjóðlegu geimstöðvarinnar gæti orðið að veruleika í mars. Þetta staðhæfir NASA, bandaríska geimferðastofnunin. Meira »

iPhone styrkti stöðu sína

iPhone seldist vel í fyrra.
6.2. iPhone æði greip um sig á síðasta ári á heimsvísu og við það komst Apple í þriðja sætið yfir þá farsímaframleiðendur sem seldu mest. Nokia er sem fyrr í efsta sæti en fyrirtækið seldi 113,5 milljónir síma. Meira »

Breyttir lífshættir skipta sköpum

Reykingar drepa
3.2. Hægt er að koma í veg fyrir 30% krabbameinstilfella með breyttum lífsháttum. Einn helsti áhættuþátturinn er reykingar.  Meira »

Íslenskt „app“ slær í gegn

Forritið Air Media Center frá íslenska fyrirtækinu App Dynamic ehf streymir efni milli tölvu og ...
2.2. Nýtt íslenskt snjallsímaforrit, „app“, sem hannað er fyrir iPhone og iPad hefur slegið í gegn meðal notenda um allan heim. Eftir aðeins nokkurra daga sölu hefur forritið, Air Media Center, farið í efstu sæti sölulista í yfir 40 löndum og heldur áfram að klífa listana víða um heim. Meira »
Finnur.is
Sjónvarpsskenkur
Sjónvarpsskenkur með miklu geymslurými til sölu. Verð kr. 20.000. Upplýsingar ...
PARSUN UTANBORÐSMÓTORAR 2,6 - 5- 15 -25 HP Á LAGER
Erum að fara panta, getum tekið niður óskir um aðrar stærðir. Einnig hægt að fá...
TIL LEIGU 20-60 FM IÐNAÐARPLÁSS
Til leigu 20-60 fm iðnaðarpláss Staðsett 20 mín...
4 stólar til sölu - mjög gott verð !
Þessir flottu stólar eru til sölu. 5.000 kr. stk. Upplýsingar í s. 663-5892....
 
Skipstjóri
Önnur störf
Skipstjóri Skipstjóri ...
Sýslumaðurinn í keflavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Sölumaður óskast
Sölu/markaðsstörf
Sölumaður óskast til starfa í húsgag...
15182 matsala til starfsmanna landspítal
Tilboð - útboð
Útboð nr. 15182 - Matsal...