Evrópsk lögregla til atlögu við ólöglegt niðurhal
Lögregla víðsvegar um Evrópu hefur gert húsleitir hjá tæplega fimmtíu veffyrirtækjum sem eru grunuð um að bjóða upp á ólöglegt niðurhal. Meðal annars hefur verið leitað hjá PRQ í Svíþjóð en talið er að fyrirtækið visti Pirate Bay vefinn og WikiLeaks. Er þetta ein umfangsmesta aðgerð sem lögregla í Evrópu hefur farið gegn ólöglegu niðurhali.
Alls var farið inn í 48 fyrirtæki víðsvegar um Evrópu. Þar af voru sjö í Svíþjóð en aðgerðunum var stjórnað af lögreglu í Belgíu og Svíþjóð sem segir þær niðurstaða tveggja ára rannsóknar á starfsemi þessara fyrirtækja.
BBC hefur eftir sænska saksóknaraembættinu að rannsóknin beindist gegn neti sem nefnist „The Scene" og býður upp á niðurhal á kvikmyndum áður en þær koma á dvd mynddiska.
Búið er að handtaka fjóra í tengslum við málið í Svíþjóð auk þess sem lagt hefur verið hald á fjölda netþjóna og tölva. Segir lögreglan að aðgerðin tengist á engan hátt WikiLeaks.
Sænskur dómstóll fann í apríl í fyrra fjóra forsvarsmenn Pirate Bay seka um að
hvetja til höfundarréttarlagabrota með því að reka netsíðuna. Þeir voru
dæmdir í árs skilorðsbundið fangelsi og til að greiða 30 milljónir
sænskra króna í bætur til kvikmynda- og tónlistarframleiðenda.
Bloggað um fréttina
-
-
Árni Viðar Björgvinsson "tengist á engan hátt WikiLeaks" - HAH! -
Garðar Valur Pissa upp í vindinn
-
Leita enn að líkum um borð
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina
Háskólakennsla
Tvö störf við Verkfræði- og náttúruvís...
























