Já-appið nálgast 50.000 notendur

Já.is-appið sem kom út í vor nálgast nú þann áfanga að hafa verið sótt 50 þúsund sinnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ja.is

Þar segir að þetta samsvari því að um 20% landsmanna á aldrinum 18-65 ára hafi sótt appið. Appið geymir upplýsingar um 94% landsmanna en áður hefur Já gefið út appið Já Núna sem gerir notendum kleift að sjá hver er að hringja áður en símtali er svarað.

Það er frítt að sækja Já.is appið og það kostar ekkert að fletta upp í appinu líkt og á vefnum Já.is. Ásamt því að geta fundið upplýsingar um símanúmer er einnig hægt að hringja, senda SMS skilaboð eða tölvupóst, skoða staðsetningu á korti, fá vegvísun, finna afgreiðslutíma, skoða samfélagsmiðla og umsagnir um fyrirtæki í gegnum appið.

Appið hefur vermt efstu sæti topp lista yfir vinsælustu íslensku öppin bæði á iTunes og Google Play frá útgáfudegi og miðað við hraða dreifingu síðustu misseri má búast við að fjöldi þeirra sem nota appið muni á endanum telja yfir 100.000 manns.

Appið er í boði fyrir Android og iPhone síma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert