Samsung S6 til höfuðs iPhone 6

Samsung kynnti í dag nýja snjallsíma sína, Samsung Galaxy S6 og Samsung Galaxy S6 Edge. Forstjóri fyrirtækisins segir þá leggja línuna á snjallsímamarkaðnum enda með öflugustu örgjörvana og bestu myndavélarnar.

Meðal nýjunga er að Samsung S6 fylgir þráðlaust hleðslutæki en með því á að vera hægt að hlaða símann í tíu mínútur til að fá tveggja tíma notkun. Þá er 16 megapixla myndavél í símanum. Síminn er einnig töluvert stærri heldur en iPhone 6.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert