Villumeldingin „Error 53” hefur verið að gera iPhone 6 notendum víða um heim lífið leitt upp á síðkastið. Villan kemur upp eftir uppfærslu á nýjasta stýrikerfi símanna, iOS 9, en eingöngu í þeim símum sem gert hefur verið við af óvottuðum aðila. Apple segir að um öryggisráðstöfun sé að ræða í þágu viðskiptavina.
Frétt mbl.is: Þúsundir iPhone 6 síma „drepnir“
Bjarni Ákason, framkvæmdastjóri Eplis, kannast ekki við að íslenskir iPhone eigendur hafi fengið þessa villumeldingu. Í frétt breska dagblaðsins Guardian kemur fram að villan komi upp þegar gert hefur verið við svonefndan „Home“-takka saman á símunum en hann inniheldur fingrafaraskanna.
„Aðilar sem sjá um viðgerðir hér á landi eru með stimpil frá Apple. „Home“ -hnappurinn fylgir skjánum og við sendum því símann út og aðilar frá Apple skipta um skjá,“ segir Bjarni. Fólk hefur einnig lent í vandræðum vegna síma sem orðið hafa fyrir hnjaski en hægt hefur verið að nota áfram. Í kjölfarið verði meðal annars gögn á símunum, til að mynda myndir og myndbandsupptökur, óaðgengileg.
Bjarni tekur undir orð forsvarsmanna Apple að um algjöra öryggisráðstöfun sé að ræða. „Þetta er fyrst og fremst öryggisatriði hjá Apple sem vill koma í veg fyrir að þriðji aðili komist yfir persónulegar upplýsingar um viðkomandi.“