Facebook opnaði í dag markaðstorg þar sem notendur miðilsins geta auglýst hluti til sölu eða til kaups.
Með þessu er ljóst að Facebook er að róa á ný mið til höfuðs vinsælum sölusíðum á netinu á borð við Craigslist.
Talið er að í hverjum mánuði heimsæki um 450 milljón notendur Facebook margvíslegar sölusíður á samfélagsmiðlinum. Inni á markaðstorgi Facebook er hægt að skoða ýmsa vöruflokka og einnig sjá vörur sem verið er að selja í nágrenninu.
Sjá nánar um markaðstorgið hér.