Twitter hefur breytt verklagi sínu og komið fyrir varnöglum eftir að starfsmaður Twitter lokaði aðgangi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í dag á síðasta vinnudegi sínum hjá fyrirtækinu.
Twittersíða Trumps lá niðri í 11 mínútur en Twitter opnaði aftur fyrir hana þegar upp komst um atvikið. „Við höfum komið fyrir varnöglum til að koma í veg fyrir að svona atviki endurtaki sig,“ segir í tilkynningu sem Twitter sendi frá sér í kjölfarið en þar kemur einnig fram að fyrirtækið líti þetta alvarlegum augum.