Gitanjali Rao, ellefu ára stúlka frá Colorado, hlaut viðurkenninguna „Besti bandaríski ungi vísindamaðurinn“ og 25 þúsund dollara í verðlaunafé eða um 2,6 milljónir króna. Verðlaunin fær hún fyrir þróun tækis sem nemur blý í drykkjarvatni. Slík tæki eru þegar til en Rao segir uppfinningu sína fljótvirkari og ódýrari en þá sem fyrir sé á markaðnum.
Rao segist hafa fengið innplástur að uppfinningu sinni er mikill vatnsskortur varð í Flint í Michigan. Afleiðingar skortsins urðu m.a. þær að vatn mengaðist af blýi og öðrum eiturefnum. „Ég ætla að nota verðlaunaféð til að þróa tækið mitt betur svo að það geti farið á markað fljótlega,“ segir hinn efnilegi vísindamaður í samtali við CNN.
Blý er hættulegur málmur og aðeins lítið magn af honum getur reynst mönnum hættulegt. Það er sérstaklega hættulegt börnum ef þau innbyrða það.