Geimfararnir ná brátt áfangastað

Það verður varla sagt að vel fari um geimfarana í …
Það verður varla sagt að vel fari um geimfarana í hylkinu Endeavour. AFP

Geimhylkið sem bandarísku geimfararnir Doug Hurley og Bob Behnken dvelja í á leið sinni á braut um jörðu mun festa sig við alþjóðlegu geimstöðina, ISS, klukkan 14:30 í dag. Ferlið er alfarið sjálfsvirkt og þurfa geimfararnir ekki að grípa inn í nema eitthvað komi upp á.

Þegar hylkið hefur fest sig rækilega við geimstöðina og þrýstingsskoðun lokið geta þeir farið inn í geimstöðina en þar hitta þeir fyrir hóp rússneskra og bandarískra geimfara. Geimfararnir lögðu af stað frá Kennedy-skotstöðinni í Flórída klukkan 19:22 í gær og tekur ferðalagið upp í geim því um 19 klukkustundir. Þann tíma hafa þeir meðal annars nýtt í að sofa til að undirbúa sig undir átök dagsins.

Falcon 9 eldflaugin tekur á loft með geimfarana innan hylkisins …
Falcon 9 eldflaugin tekur á loft með geimfarana innan hylkisins Endeavour. AFP

Áður en að því kom fylgdu þeir þó hefð bandarískra geimfara að nefna hylkið. Tilkynntu þeir, þegar þeir voru komnir í loftið, að hylkið myndi fá nafnið Endeavour, sem þýða má Viðleitni eða Tilraun.

Mun það nafn vera valið bæði til heiðurs annarri skutlu með sama nafn, en hún var sú fyrsta sem báðir menn flugu með, en ekki síður vegna „þeirra mögnuðu tilrauna (e. endeavour) sem NASA, SpaceX og Bandaríkin hafa staðið í frá því geimflaugaáætluninni lauk 2011“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert