Úrslitin vekja athygli

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, ræddi við erlenda fjölmiðlamenn í Iðnó í …
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, ræddi við erlenda fjölmiðlamenn í Iðnó í kvöld eftur að fyrstu tölur birtust. mbl.is/Kristinn

Úrslitin í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave-lögin í dag hafa vakið mikla athygli víða um heim og var strax sagt frá þeim í erlendum fjölmiðlum enda sendu þeir margir fréttamenn hingað til lands til að fylgjast með kosningunni.

Allir helstu fjölmiðlar á Norðurlöndunum, Bretlandi og víðar í Evrópu og í sögðu strax frá niðurstöðunni. Bandarískir fjölmiðlar á borð við New York Times og Voice of America hafa einnig sagt frá úrslitinum og  frá því, sem kom fram í fréttatilkynningu forsætisráðuneytisins í kvöld, að Bretar og Hollendingar hefðu fallist á að halda áfram viðræðum um Icesave-málið. 

mbl.is

Bloggað um fréttina