Ragnheiður Elín greiddi atkvæði gegn tillögu um veiðibann

Morgunblaðið/Einar Falur

Það er óhætt að segja að fáar stjórnsýslulegar ákvarðanir hafi valdið jafn miklu fjaðrafoki í veiðiheiminum og sú ákvörðun Þingvallanefndar að banna veiði í vatninu að næturlagi.

Þingvallanefnd skipa Álfheiður Ingadóttir sem er formaður nefndarinnar, Björgvin G. Sigurðsson, Ragnheiður Elín Árnadóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Valgerður Bjarnadóttir, Þuríður Backman, Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður og Hrefna Sylvía Sigurgeirsdóttir sem ritaði fundargerð.  Það skal tekið fram að aðeins Ragnheiður Elín kaus á móti tillögum nefndarinnar um áðurnefnt veiðibann.  Fundargerð nefndarinnar má sjá á eftirfarandi link: http://thingvellir.is/media/21374/397.fundur.pdf

Það sem hefur vakið mesta athygli í þeirri umfjöllun sem á sér stað er að veiðimenn sem tjá sig um málið kannast ekki við nefnd drykkjulæti eða ónæði veiðimanna og þykir þetta foræðishyggja af verstu sort.  Það eru engin haldbær rök fyrir því að banna þessar veiðar og má gera þá athugasemd við störf nefndarinnar varðandi þetta mál að ekki virðist hafa verið nokkurt samráð við neinn forsvarsmann veiðimanna þegar þessi ákvörðun var tekinn eins og áður segir með aðeins einu atkvæði á móti tillögunni.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert