„Þetta hefur átt sér einhverra mánaða aðdraganda,“ segir Sigurður Guðjónsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar um samstarfssamning stofnunarinnar og breska auðkýfingsins Jim Ratcliffe sem undirritaðir voru í dag.
Ratcliffe leggur 80 milljónir í rannsóknir á laxastofninum á Norðausturlandi, þar sem hann sjálfur á stórar landareignir í grennd við laxveiðiár í landshlutanum.
Sigurður segir að Hafrannsóknastofnun fái nokkuð frjálsar hendur um hvernig rannsóknarverkefnið verði lagt upp og það sé skemmtilegt.
„Við vonum að það komi ný þekking út úr þessu öllu saman,“ sagði forstjórinn, í samtali við blaðamenn eftir kynningarfund rannsóknarverkefnisins í dag.
Sigurður segir að það sé ekkert einsdæmi að einkaaðilar á borð við Ratcliffe komi inn með fjármagn til rannsókna hjá stofnuninni, sem vinni mikið að rannsóknarverkefnum fyrir veiðifélög landsins, orkufyrirtæki og sveitarfélög. Hann segir hagsmuni Ratcliffe og Hafrannsóknarstofnunar mætast í þessu verkefni.
„Hann vill vita meira um laxinn og það eru okkar ær og kýr alla daga, að auka þekkingu á lífríki vatna og áa,“ sagði Sigurður.
Peter S. Williams, tæknistjóri og yfirmaður fjárfestinga hjá Ineos Group, fyrirtæki Ratcliffe, sagði í samtali við blaðamenn að Ratcliffe væri að ráðast í þetta verkefni þar sem hann elskaði Ísland og sérstaklega einstakt lífríkið á Norðausturlandi.
„Þetta er gott svæði til þess að gera rannsóknir, þar sem það eru bara þrjár fiskitegundir í ánum og ætti að skila góðum niðurstöðum um hvernig hægt er að fjölga einstaklingum í stofninum,“ sagði Peter.
„Þú gætir ekki réttlætt þetta verkefni út frá viðskiptalegum forsendum, þetta er bara réttlætanlegt þegar þú hugsar um þetta út frá langtímaverndun umhverfisins,“ sagði Williams.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |