Byssusýningin verður um helgina

Fjölbreytt úrval skotvopna verður til sýnis um helgina á árlegri …
Fjölbreytt úrval skotvopna verður til sýnis um helgina á árlegri byssusýningu hjá Veiðisafninu á Stokkseyri. Ljósmynd/Veiðisafnið

Það er byrjað að örla á vorboðunum. Byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri er einn þeirra fyrstu. Þessi árlega sýning hefur skipað sér fastan sess í hugum veiðiáhugafólks. Að þessu sinni fer sýningin fram dagana 23. og 24. mars. Sem sagt um komandi helgi.

Að þessu sinni er sýningin í samvinnu við verslunina HLAÐ - Reykjavík og PRS skotíþróttasamtök Íslands laugardaginn 23. og sunnudaginn 24. mars 2024 frá kl. 11–18 í húsakynnum Veiðisafnsins, Eyrarbraut 49 Stokkseyri.

Hlaðsmenn verða á staðnum og sýna úrval skotvopna sem og búnað til skotveiða ásamt sjónaukum og aukabúnaði til sýnis og sölu.

Einnig verður skothermir á staðnum og ætti það að vera sérlega áhugavert verkfæri fyrir áhugafólk um byssur og veiðar.

Í fréttatilkynningu sem Veiðisafnið sendi frá sér vegna sýningarinnar segir:

„Félagsmenn PRS verða á staðnum og sýna keppnisriffla sína og aukabúnað sem notaður er til íþróttaiðkunarinnar og er hér kjörið tækifæri til að tala við þá um græjurnar og og fræðast um íþróttina. PRS stendur fyrir Precision Rifle Series og er mótasería þar sem keppt er með nákvæmnisrifflum og skotið á stálskotmörk á lengri færum. Keppt er bæði með miðkveiktum kalíberum í íslensku PRS mótaseríunni og randkveiktum 22lr. rifflum í PR22 mótaseríunni.

Einnig verða til sýnis skotvopn og munir frá Sigurði Ásgeirssyni, Einari frá Þverá, Sveini Einarssynifrv.veiðistjóra, Sigmari B. Haukssyni og Drífu-haglabyssur frá Jóni Björnssyni heitnum frá Dalvík ásamt úrvali skotvopna svo sem haglabyssur, rifflar, skammbyssur, herrifflar ásamt ýmsu tengdu skotveiðum frá Veiðisafninu.“

Páll Reynisson, stofnandi og safnstjóri Veiðisafnsins á Stokkseyri.
Páll Reynisson, stofnandi og safnstjóri Veiðisafnsins á Stokkseyri. mbl.is/RAX

Páll Reynisson stofnaði safnið á sínum tíma og hefur lagt ómælda vinnu í að gera það að einu áhugaverðasta safni landsins. Hann er sjálfur þaulvanur skotveiðimaður og hefur ferðast um allan heim til veiða.

Veiðisafnið býður upp á skemmtilega upplifun með flottum sýningarsölum sem hýsa fágæta og áhugaverða gripi. Byssusýningin verður opin laugardaginn 23. og sunnudaginn 24. mars frá klukkan 11 – 18, báða daga í húsakynnum Veiðisafnsins, Eyrarbraut 49 Stokkseyri.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert